Finndu leiðina til okkar! #NjótumSaman
Norðurljósahöfuðborg Íslands
Veitingahúsið Kaffi Borgir við Dimmuborgir í Mývatnssveit býður uppá fjölbreyttan matseðil úr úrvals hráefni og einstakt útsýni yfir sveitina fögru.
Allt lambakjötið og geitakjötið framleiðum við fjölskyldan sjálf í Kálfaströnd. Nautakjötið fáum við frá góðum nágrönnum okkar á Gautlöndum og villtan silung frá Vestmannsvatni þegar viðrar til veiði. Annars fáum við silunginn okkar frá Haukamýri. Við leggjum metnað okkar í að búa til góðan mat úr úrvals hráefni.
Bjóðum einnig uppá fjöldann allan af kökum og léttari réttum, svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hjá okkur.
Í hádeginu bjóðum við meðal annars uppá þriggja súpu hlaðborð, ávalt með okkar ljúffengu kjötsúpu og nýbökuðu hverabrauði.
Einnig viljum við benda á okkar sérstaka 2ja rétta kvöldverðartilboð , sem er öll kvöld frá 1.júní – 25. Ágúst, á aðeins 3.300 kr. á mann.
Hlökkum til að sjá ykkur í Kaffi Borgum
Norðurljósahöfuðborg Íslands
Visit Mývatn
Mývatnsstofa ehf
660 Mývatn
Ísland
info@visitmyvatn.is